1.920 ljósmyndir á tveimur og hálfri mínútu.

Ég er enn að fikta við að kvikmynda hérna á Sigló, en í þetta sinn stillti ég myndavél upp í botni fjarðarins og lét hana taka eina ljósmynd á 30 sekúndna fresti frá kvöldi til hádegis daginn eftir, eða í um 16 tíma. 

Ljósmyndirnar urðu um 1.920 talsins og setti ég þær saman í moviemaker og tímasetti þannig að hver ljósmynd varir í 0,08 mínútur.  Þannig verður til svokölluð time lapse  kvikmynd af sólsetri og sólarupprás, sem tekur 2,39 mínútur í spilun.   Svolítið magnaða að sjá, þótt ég segi sjálfur frá.

Veðurblíðan hefur verið einstök þessa helgina eins og sjá má og bærinn iðandi af lífi. Það stefnir allt í afburðaraðsókn á síldar ævintýrið 1.-6. ágúst n.k. enda von á sömu blíðu áfram svo langt sem spámenn sjá.

(Bendi á að smella á tannhjólið og velja bestu HD upplausn. Sumir geta þurft að setja á pásu og leyfa myndbandinu að hlaðast upp í þeirri upplausn.  Einnig má horfa á þetta í fullum skjá HÉR.

Njótið vel.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

þetta er svo fallegt og svo kemur sólarupprás, eftir fallegt sólarlag og allt eitthvað svo "íslenskt" . Takk, bloggvinur, svona er einstakt eins og margt sem þú hefur gert! Takk

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.7.2012 kl. 03:37

2 Smámynd: Magnús Ágústsson

Virkilega flott Takk fyrir

Magnús Ágústsson, 29.7.2012 kl. 06:05

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Magnað!

Hrannar Baldursson, 29.7.2012 kl. 07:46

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Glæsilegt Jón Steinar. Verð eignlega að fá leyfi hjá þér til að senda ættingjum í Norður Dakóta þetta myndband þitt. Er kannski linkur á það á youtube?

Gunnar Heiðarsson, 29.7.2012 kl. 08:38

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Takk kærlega fyrir . Gunnar, það er linkur þarna á YT neðst í textanum á blogginu, en mig grunar að einhverjar takmarkanir séu á að sjá þetta í USA út af höfundarréttarbulli varðandi tónlistina. Ætli maður verði ekki að skipta um lag til að þeir opni á þetta í USA.  Ég reyni að bjarga því í dag.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.7.2012 kl. 10:33

6 identicon

Mjög fallegt. Snjöll hugmynd.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 29.7.2012 kl. 10:54

7 Smámynd: Jón Baldur L'Orange

Listaverk er eina orðið sem ég á yfir þetta. Þú færð einhvern íslenskan tónlistarmann til að semja tónlist við verkið.

Jón Baldur L'Orange, 29.7.2012 kl. 12:40

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þetta Jón Steinar sannarlega áhrifamikið sjónarspil.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.7.2012 kl. 13:26

9 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þetta er aldeilis flott hikmynd Jón Steinar.

Ágúst H Bjarnason, 29.7.2012 kl. 18:51

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Vel gert.

Theódór Norðkvist, 29.7.2012 kl. 19:27

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þakka ykkur jákvæðar athugasemdir. Gaman að vita þegar manni tekst það sem til var ætlast. Ég er enn að prófa mig áfram í þessu og ætla að reyna að ná þessu í einhverju skýjafari, sem gerir þetta allt miklu líflegra.  Ætlunin er svo að taka svona myndbönd frá ýmsum sjónhornum og klippa saman í eitthvað heilstætt. Þetta eru prófanir fyrir það.

Jón Steinar Ragnarsson, 29.7.2012 kl. 21:50

12 identicon

Jón Steinar takk fyrir þetta fallega myndband af Siglufirði. Þetta er algjört listaverk. Frábær hugmynd hjá þér:)

Maddý Þórðar (IP-tala skráð) 29.7.2012 kl. 22:49

13 Smámynd: Magnús Ágústsson

Gaman að sjá að þessi umræða sé kominn í "heitar umræður" svoa falleg og jákvætt

ekkki þessi venjulega neikvæni sem þar ræður ríkjum

Magnús Ágústsson, 30.7.2012 kl. 05:43

14 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll aftur.

Það væri fróðlegt að vita hvernig þú heldur svona lengi rafmagni á myndavélinni. Ertu með einhverja stóra rafhlöðu?

Ágúst H Bjarnason, 30.7.2012 kl. 13:02

15 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ágúst. Ég er með lítinn straumbreyti með kló, sem tengist í USB.  Raunar af I-Pad, sem er svolítið mixerí.  Það er líka hægt að nota usb hleðslutæki sem ætlað er fyrir sígarettukveikjara outlet í bílum og tengja við 12v batterí.  Ráðlegg fólki þó að tala við fróðari um ráðleggingar.

Það er hægt að fá extra battery á gopró, sem húkkast á bakhlið og einnig hleðslutæki sem hægt er að stinga í samband. Gopro er annars oftast hlaðinn með að tengja hann við USB port á tölvu.  Þannig kemur hann standard.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2012 kl. 13:41

16 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fyrir topp myndgæði og meiri stjórn á þeim, þá ráðlegg ég mönnum að fá sér tímastilli á t.d. Canon vélina (shutter control)sem ætlaður er í timelapse og fá aukahluti til að setja hana í samband við varanlegri orku.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2012 kl. 13:45

17 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hef semsagt aðgan að innstungu í þessu tilfelli Ágúst.  Vélin er þarna í sumarbústað inni í firði.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2012 kl. 13:48

18 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk fyrir upplýsingarnar Jón Steinar.

Sonur minn var einmitt að gera frumtilraunir með að taka hikmyndir núna um helgina á Canon 550D og tímastilli, en bara með innbyggðu rafhlöðunni. Þetta voru bara tvö tiltölulega stutt myndskeið til að prófa. Annað með 5 sek millibili og hitt 30 sek. Hann notaði síðan Windows Live Movie Maker til að setja saman myndirnar.

Þar sem þú minnist á Gopro þá á ég þannig myndavél, eða Gopro Hero2. Fyrir um 3 vikum setti ég hana ofan á fjarstýrða svifflugu og tók þessa kvikmynd skammt frá Geysi:
http://www.youtube.com/watch?v=GfH56L78ioQ&feature=plcp

Ágúst H Bjarnason, 30.7.2012 kl. 19:09

19 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Best að skoða myndbandið í 720HD upplausn og fullri skjástærð.

Mótorinn í svifflugunni er um 600 wött (3ja fasa riðstraumsmótor) og nær hún þessari flughæð með næstum lóðréttu klifri í 10 - 15 sek. Rafhlaðan er 4 sellu LiPo og áriðill býr til 3ja fasa rafmagnið.

Ágúst H Bjarnason, 30.7.2012 kl. 19:17

20 Smámynd: Páll Blöndal

Þú mörg færð læk á þetta Jón frá undirrituðum ;)

Páll Blöndal, 30.7.2012 kl. 21:32

21 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Takk fyrir þetta myndband Ágúst. Það er alveg magnað hvað hægt er að gera með þessum græjum. Ókostirnir við Gopro eru að þeir performera ekki vel í litlu ljósi og svo er það gleiðlinsubjögunin, sem þó má stilla eitthvað.  Hámarksupplausnin er 11megapixlar, svo Canon 550D hefur flesta kosti framyfir ef menn ætla að gera falleg myndbönd.  Það eru líka til tímastýrðir trakkar eða Dolly fyrir þessar vélar, svo það er hægt að bæta hreyfingu í upptökuna.  Eitt sem ég á eftir að prófa með Gopróinn er að setja hann ofan á eggjaklukku úr IKEA og láta hann pana um leið og hann tekur upp. Ég er að smella af á 30 sek. fresti.

Ég set myndirnar inn í WMM og vel allr myndirnar með að hægrismella á "select all". Svo fer ég í videotools flipann og vel duration 0,08 min á mynd. Þar með er ég kominn með nokkuð smooth mynd.

Ég tek þetta síðan inn í Sony Vegas klippiforritið og kroppa bjögunina út úr myndinni, sem er svolítið á kostnað upplausnarinnar. Ég get svo hraðað þessu eða hægt inni í því forriti, lagað skerpu, liti og baklýsingu t.d. 

Með Canon, þarf ekki að kroppa neitt nema að þú sért með fish eye linsu á henni líka.  Svona panorama nær maður þó tæplega nema með nokkuð gleiðri linsu. 

Það gerir þetta svo allt skemmtilegra ef maður klippir og snyrtir og setur góða tónlist undir. Sem raunar er leikur einn í WMM. 

Það eru til gadget til að viðhalda batteríislífi í þessu öllu og herra Google getur fundið það með þér. Oftast þarf þó ekki svona langan líftíma á rafhlöðuna, en hikmyndir geta krafist þess.  (Gott nýyrði hjá þér)

Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2012 kl. 22:05

22 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Tók annað stutt myndskeið í nótt og í morgun þar sem skýjafarið var svolítið ævintýralegra. Skelli því inn á eftir.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.7.2012 kl. 22:11

23 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Steinar. Takk fyrir þetta stórkostlega myndskeið. Þetta er alvöru listaverk. Þú ert snillingur  

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 31.7.2012 kl. 07:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband