Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Feigðarós - Hraðferð
22.6.2008 | 02:09
Hér fyrir neðan er 21 mín. heimildarmynd, sem lýsir vel helstefnu neysluhyggjunnar á skýran og ýkjulausan máta. Við erum mörg hver afar meðvitandi um rýrnun auðlinda og mengun og teljum okkur vera að vinna mikið þarfaverk með að flokka sorp og huga að endurvinnslu, sem vissulega er óumdeilanlega gott og dyggðugt. Við friðþægjum samviskuna með þessu í leiðinni og erum ekki að gera mikið annað sem skiptir máli. Það sem skiptir máli er neysla okkar sjálfra og hve mikið og hratt við breytum neysluvörum í úrgang.
Ferlið sem við erum í er vatnsrennibraut að feigðarósi fyrir mannkyn og siðmenningu. Við bölvum spilltum ríkisbubbum og iðnjöfrum, fordæmum barnaþrælkun, iðnaðarhyggju, auðsöfnun og náttúruspjöll; hlekkjum okkur við jarðýtur og álver, veifum mótmælaspjöldum og völdum spjöllum á iðnaðar og orkumannvirkjum í gremju okkar yfir gráðugum ofurfyrirtækjum, en erum sjálf algerlega blind á hver sökudólgurinn er. Sökudólgarnir erum við. Meðaljón og Alþýðugunna. Við erum neytendurnir, við viðhöldum þessu línulaga neyslukerfi frá auðlind til sorphauga. Kerfi sem gengur þvert á lögmálin um hringrás náttúrunnar.
Við erum jú að reyna að breyta þessu; sýnum allavega skilning og vilja, en misskiljum eða afneitum hlutdeild okkar í ferlinu. Við erum kvörnin sem breytum gæðum í rusl og iðnaðurinn hefur ekki undan í að svala neyslulostanum. Ert þú meðvitandi um þetta? Ert þú að gera eitthvað sem máli skiptir? Er sorpflokkun þitt valíum og kaupæðið þitt amfetamín í drunga ófullnægjunnar? Ertu fastur / föst í vítahringnum? Hefurðu komið þér upp blóraböggli í formi feitra kaupahéðna? Eru þeir ímynd hins illa?
Þú ættir að horfa á þessa einföldu mynd og sjá þinn hlut í þessu og vakna til vitundar. Skoða neyslu þína og draga úr henni. Neysluhyggjan er meðvituð sálfræðileg skilyrðing mannsandans af hendi auðhyggjunnar og þú ert tilraunadýrið; hundur Pavlovs sem slefar ómeðvitað yfir auglýsingaskruminu. Já og ég líka; ég veit. Sjálfsvirðing mín sem okkar allra er bundin hlutum; að eiga og vera hitt eða þetta er ég. Ég er ekki maður með mönnum, nema ég sé svona klæddur, keyri svona, eigi svona síma, tölvu,jakka, skó,jeppa,hús,borðbúnað etc. Hafi svona klippingu, reyki þetta, drekki hitt...það er ég. Án þessa væri ég ekkert....eða... hef ég nokkurn tíman látið reyna á hið gagnstæða?
Er ég neysluhóra?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)


lehamzdr
astromix
palmig
eythora
robertb
jensgud
rannug
hk
kolgrimur
larahanna
poppoli
sigrunb
kaffi
steina
ragnhildur
hjorleifurg
arh
nimbus
joninasolborg
svanurmd
nilli
annaeinars
1962
hronnsig
veffari
steinunnolina
don
kiddirokk
sjos
ingibjorgelsa
freedomfries
kallimatt
matti-matt
klaralitla
darwin
ipanama
estersv
ollasak
trukona
baldvinj
idda
egillrunar
anno
steinrikur
maggabest
maggy78
svalaj
doriborg
ingabesta
gunnardofri
elma
andreaolafs
kristjan9
agbjarn
bjarnihardar
kosningar
vestfirdir
polli
eggmann
rattati
nerdumdigitalis
heidathord
bleikaeldingin
dua
vglilja
bet
svatli
hehau
steiniboy
athena
hlodver
magnusvignir
ahi
eyvi
maggadora
vefritid
hof
gunnipallikokkur
saemi7
ktomm
motta
olafurfa
olofannajohanns
martasmarta
ormurormur
hrunda
bubot
snjaldurmus
gudni-is
marypoppins
kjarvald
baldurkr
agny
tru
ingahel
jogamagg
pallgeir
gullvagninn
elly
gudrunarbirnu
ernafr
lindalea
kerla
arnaeinars
kiza
sign
hector
gislihjalmar
josira
photo
asagreta
uno
egill75
evabenz
siggiholmar
madddy
brylli
siggihara
malacai
rosaadalsteinsdottir
halkatla
gisgis
regin
valsol
johannpall
zunzilla
maggi-coolest
lindagisla
mel
tibet
jonerr
bjorgvinholm
neo
jonnnnni
hinrikthor
rannveigh
enoch
gudmundurhelgi
skari60
andmenning
einari
jevbmaack
gammon
valli57
siggikaiser
tharfagreinir
hlini
ea
gullilitli
holmdish
kokkksrit
aronsky
sindri79
lillagud
lovelikeblood
proletariat
asdisran
vestskafttenor
hrollvekjur
formosus
steinibriem
himmalingur
vest1
hildurhelgas
fhg
adhdblogg
blossom
aslaugas
bailey
gattin
eignarfall
diesel
dittan
lucas
zumann
gudmunduroli
topplistinn
gunnihard
haddi9001
maeglika
haugur
heimirh
snjolfur
hrannsa
ljonas
leifur
kt
kikka
astroblog
manisvans
omarbjarki
ommi
huldumenn
petur
iceland
ragjo
fullvalda
siggi-hrellir
ziggi
reykas
stjornuskodun
theodorn
hanoi
postdoc
thorsteinnscheving
icekeiko






![edward-bernays[1]](/img/tncache/s100/f4/prakkarinn/img/edward-bernays_1_953522.jpg)