Færsluflokkar
Eldri færslur
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- asthildurcesil
- lehamzdr
- astromix
- palmig
- eythora
- robertb
- jensgud
- rannug
- hk
- kolgrimur
- larahanna
- poppoli
- laufeywaage
- kaffi
- steina
- ragnhildur
- hjorleifurg
- arh
- nimbus
- bene
- svanurmd
- nilli
- tolliagustar
- annaeinars
- 1962
- veffari
- steinunnolina
- zerogirl
- don
- kiddirokk
- sjos
- ingibjorgelsa
- freedomfries
- silfrid
- kallimatt
- matti-matt
- omarminn
- klaralitla
- darwin
- ipanama
- estersv
- ollasak
- trukona
- baldvinj
- idda
- egillrunar
- steinrikur
- maggabest
- svalaj
- doriborg
- ingabesta
- thordursteinngudmunds
- elma
- andreaolafs
- skaftie
- kristjan9
- agbjarn
- bjarnihardar
- kosningar
- vestfirdir
- polli
- eggmann
- rattati
- nerdumdigitalis
- heidathord
- bleikaeldingin
- dua
- vglilja
- bet
- svatli
- hehau
- steiniboy
- athena
- hlodver
- magnusvignir
- ahi
- eyvi
- maggadora
- vefritid
- bergruniris
- hof
- perlaheim
- elinarnar
- gunnipallikokkur
- saemi7
- ktomm
- motta
- olafurfa
- olofannajohanns
- martasmarta
- ormurormur
- garun
- bubot
- snjaldurmus
- gudni-is
- marypoppins
- kjarvald
- baldurkr
- agny
- tru
- ingahel
- jogamagg
- pallgeir
- gullvagninn
- elly
- gudrunarbirnu
- komediuleikhusid
- ernafr
- lindalea
- kerla
- arnaeinars
- kiza
- sign
- hector
- cerebellum
- bjarkib
- gislihjalmar
- josira
- photo
- uno
- egill75
- evabenz
- siggiholmar
- bulgaria
- madddy
- brylli
- siggihara
- malacai
- rosaadalsteinsdottir
- halkatla
- gisgis
- steinibjarna
- johannpall
- zunzilla
- maggi-coolest
- einarsigvalda
- fsfi
- tibet
- frussukusk
- jonerr
- kreppan
- ews
- neo
- jonnnnni
- hinrikthor
- rannveigh
- enoch
- gudmundurhelgi
- skari60
- andmenning
- einari
- jevbmaack
- gammon
- valli57
- siggikaiser
- tharfagreinir
- hlini
- ea
- gullilitli
- holmdish
- stormsker
- aronsky
- sindri79
- lillagud
- lovelikeblood
- proletariat
- asdisran
- vestskafttenor
- hrollvekjur
- steinibriem
- himmalingur
- vest1
- hildurhelgas
- klarak
- fhg
- adhdblogg
- blossom
- arnorbl
- arinol
- skagstrendingur
- bailey
- baldher
- gattin
- diesel
- dittan
- einarorneinars
- gustichef
- eeelle
- fornleifur
- gelin
- morgunn
- lucas
- bofs
- zumann
- gudjul
- gudmunduroli
- gragnar
- hreinn23
- topplistinn
- vgblogg
- haddi9001
- maeglika
- haugur
- heimirh
- diva73
- hrannsa
- kliddi
- hordurjo
- hordurj
- fun
- omarsdottirjohanna
- ljonas
- askja
- kolbrunerin
- leifur
- kt
- kikka
- loftslag
- magnusunnar
- magnusthor
- astroblog
- manisvans
- omarbjarki
- huldumenn
- petur
- iceland
- ragjo
- raksig
- redlion
- reputo
- fullvalda
- fullveldi
- heidarbaer
- bjornbondi99
- siggifrikk
- siggi-hrellir
- ziggi
- reykas
- stefans
- stjornuskodun
- theodorn
- tibsen
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valgardur
- hanoi
- postdoc
- thjodarheidur
Kynngimögnuð Smásaga í Litum og Panavision.
24.7.2007 | 02:07
Mjölnir leit upp og kláraði kartöfluuppskeruna um leið og hann réri yfir Kyrrahafið á sefbát. :Hvað er að angra þig elskan? Spurði hann og framleiddi sjónvarpsþátt um hlaupfiska.
Æ, ég veit það ekki. Svaraði Guðrún og jarðaði sendimenn byggingaeftirlitsins í kotru. Það er bara eitthvað svo tilbreytingarlaust hér.
Mjölnir umturnaði fjármálaheiminum hugsi. Hefur það eitthvað með mig að gera? Ég játa að ég gæti vafalaust verið margbrotnari í samskiptum mínum við yður, elskan. Hann hlammaði sér vonsvikinn niður og gerði upp þotuhreyfilinn sem hann hafði unnið í glímu eftir að hann hafði lokið við að flytja Andesfjöllin.
Nei, nei, ekki þú elskan. Þetta er bara einhver efnaskiptasjúkdómur í mér eða breytingaskeið. Sagði Guðrún skellihlæjandi og virkjaði Víðidalsá. Þetta dettur svona yfir mig stundum. Fyrirgefðu.
Mjölnir sýtti tannleysið og lagði fram breytingatillögu um skipan öryggisráðsins, svona til að dreifa athyglinni frá brennandi trésmíðaverkstæðinu. Ekkert að fyrirgefa elskan. Ég verð sjálfur svona um hver tunglkvartil.
Þau brostu og eyddu miðunum umhverfis landið með eitruðum þörungum, ánægð með hve olíuboranir þeirra á heimskautaísnum virtust takast vel. Það gat stundum borgað sig að leggja fram byltingakenndar kenningar í kjarneðlisfræði.
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Menning og listir, Stjórnmál og samfélag, Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:03 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svona sögu kann ég vel að meta. Snilld!
Jens Guð, 24.7.2007 kl. 03:10
Myndirnar tala líka sínu máli.
Kveðjur
Gunnar Páll Gunnarsson, 24.7.2007 kl. 08:22
Svona á fólk að vera..ekkert að slóra við einfalda hluti. Óborganleg saga Jón Steinar..maður á fullt í fangi að framkalla þessar ímyndir í kollinum..eru svo "stórbrotnar" eitthvað.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.7.2007 kl. 08:23
Frábær saga
Elín Arnar, 24.7.2007 kl. 10:21
frábær saga á mörgum plönum !
myndirnar eru líka góðar !
Alheimsljós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 24.7.2007 kl. 10:22
Þú hugsar stórt.
Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 10:40
Ég sé að þú ert með "NovelMaker 4.5" og hefur kveikt á nýja "wonderbreaker" fídusnum.....þulan ætti að fara að uppfæra sína útgáfu og skipta um nokkra klám parametra...
Annars flott hjá þér :)
kv,
E.
eman (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 10:55
Takk. Hugmyndin kviknaði um daginn við að heyra einhverja miðdegissöguna á Gufunni. Fólkið var að tala um hversdagslega hluti um leið og það var að gera eða sýna þessi reiðinnar býsn. Þetta er svona hefðbundinn frásagnarmáti, sem getur orðið svo skringilega leiðinlegur og absúrd. Ég hefði máske átt að hafa þetta lengra og láta Sigurð Skúlason lesa þetta. Þá hefði þetta orðið fullkomlega boring og tilgangslaust.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.7.2007 kl. 11:56
nefnilega.....
Hrönn Sigurðardóttir, 24.7.2007 kl. 12:56
Þetta er gargandi snilld... bravó!
Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.7.2007 kl. 13:05
Jón Steinar. Gargandi snilld, frábær saga, óborganleg saga, svona sögu kann ég að meta. Snilld. - Þetta eru nokkrar af umsögnum um nýjustu söguna þína og get ég einnig tekið undir þær. En það er annað sem mér kom í hug þar sem nú með stuttu millibili hafa birst sérstæðar sögur og ágætar, eftir þig og félaga þinn Jens Guð, datt mér í hug hvort ekki væri hægt að kom af stað smá keppni á milli ykkar félaganna um bestu söguna, þar sem við aðdáendur ykkar yrðum dómarar? Hvernig taka bloggarar þeirri hugmynd?
Þorkell Sigurjónsson, 24.7.2007 kl. 14:16
Jens á ekki séns í mig Þorkell.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.7.2007 kl. 14:23
meira svona...
Ellý Ármannsdóttir, 24.7.2007 kl. 20:40
Þorkell: Góð hugmynd!
Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.7.2007 kl. 21:00
Hér sýnir þú á þér enn eina snilldarhliðina félagi :) .... mætti halda að þú hafir nýlega "kúldrast í loftlausu röri um háloftin" til að fá svona hugmynd, he he :)
Hólmgeir Karlsson, 24.7.2007 kl. 21:00
Ég er hissa á lofinu en gaman að fólki er skemmt. Til þess var leikurinn gerður. Þetta var nú sett niður leiréttingarlaust á 10 mínútum með myndleit og öllu. Maður roðnar af blygðun, þegar bloggskáld á borð við þig Ellý, heiðra bloggkot mitt með viðkomu. Ekki laust við ákveðinn stílrænan skyldleika hjá okkur ef maður pælir í því.Takk fyrir innlitið og þið öll.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.7.2007 kl. 23:31
Skemmtilega súrrealískur húmör!
Róbert Björnsson, 25.7.2007 kl. 00:33
Gaman að þessu, hrátt og ferskt beint úr kvörninni og síðan sundurgreint af gagnrýnendunum næstu daga og ár!
Ívar Pálsson, 25.7.2007 kl. 17:03
Sara: Myndirnar eru bara plokkaðar af google með einföldum leitarorðum. Þessar t.d. "Woman art" - "Man Art"- "Couple art". Gott er að setja Art á eftir leitarorðinu, þá fær maður frekar málverk og teikningar. Einnig er illustration ágætt.
Jón Steinar Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 19:19
Ég þakka fyrir sögunua en hún er svo sannarlega kynngimögnuð.
Sigurjón Þórðarson, 25.7.2007 kl. 20:02
Já, hver er við stjórnvölinn, ÞAÐ ER NÚ STÓRA SPURNINGIN?
G.Helga Ingadóttir, 25.7.2007 kl. 23:37
Skemmti mér vel við lesninguna og finnst hugmyndaflug þitt taka lesandandann inn í heim, þar sem allt getur gerst. Takk fyrir umsögnina um heimasíðuna okkar í Eldató og endilega kynntu þig fyrir mér, þegar að þu kemur við hjá okkur, myndin af þér er frekar óskýr, ha,ha......
G.Helga Ingadóttir, 25.7.2007 kl. 23:40
Jamm, þetta er nákvæmilega ástæðan fyrir okkar blogglega frændsgab & ég er alltaf jafn stoltur af því að vera minnimáttar í honum.
S.
Steingrímur Helgason, 26.7.2007 kl. 00:24
Ég er kominn á Sigló aftur Steini. Stoppa styttra núna 1-2 vikur kannski. Maður nær kannski bollanum á heimleiðinni. Væri stuð.
Jón Steinar Ragnarsson, 26.7.2007 kl. 00:27
Þetta minnir mig oneitanlega a forrit sem eg keypti handa dætrum minum þar sem sagan liggur fyrir að storum hluta og aðeins eftir að velja nafnorð og lysingarorð.
maður bætir þeim inn eftir geðþotta og þa verður til svona absurd saga...
skemmtilegt...
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 26.7.2007 kl. 02:19
þetta er snilldar saga ....ótrúlegt ýmindunarafl
Margrét M, 26.7.2007 kl. 09:22
Má ég ekki leika Guðrúnu? Takk kærlega fyrir upplýsingarnar. Það vermir að til séu menn eins og þú, skapandi og gefandi í senn.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.7.2007 kl. 14:02
Árla morguns risu úr rekkjuregin mistök Skaparanns.Orsök einhverrar skondinnar skekkjuskemmtana miðlunar rafheilans:
Ásgeir Rúnar Helgason, 26.7.2007 kl. 20:56
Sorrý, formið er ekki rétt - vonandi er það betra núna:
--------------------------------------------
Árla morguns risu úr rekkju,
regin mistök Skaparanns.
orsök einhverrar skelfingar skekkju,
skemmtanna miðlunar rafheilans.
Ásgeir Rúnar Helgason, 26.7.2007 kl. 20:59
Takk fyrir þetta Ásgeir. Hér er þó engin rafheili á ferð heldur gamli góði súrkeppurinn á háaloftinu. Einhver eftirgerjun í gangi máske.
Jón Steinar Ragnarsson, 26.7.2007 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.